þriðjudagur, mars 08, 2005

Eins og ég vona að fólk hafi áttað sig á þá er maður hættur þessari vitleysu. Eftilvill þegar veður leyfir og snjór leysir þá muni maður bregða undir sig betri fætinum (ef ekki báðum) og byrja aftur að birta einhverja ólistina á netið. En þá yrði það á nýrri síðu. Takk fyrir mig!

þriðjudagur, nóvember 09, 2004

Waking up to school when you don´t want to go!!!! Hverjum líður ekki þannig núna? Ég segji það aftur, og mun endurtaka það eins of og ég vil; Ekki vera með 24 einingar!!!! Það er bara ekki sniðugt. Sem betur fer er hæfileikakeppnin og bytheway við unnum:) Nokkuð svalt bara, Skaðrót á framabrautinni. En þessi lærdómur er að drepa mig. Mig langar best að grafa mér skotgröf út á Merkurtúni og skríða oní hana og birtast ekki aftur fyrr en jólin koma!! Ég gæti byrgt mig upp af niðursoðnum mat og vopnum. Brennt skólabækur til að halda á mér hita. Enginn fengi að koma nær en í 50 til 100 metra radíus og þá fengu hann eitthvert gjöreyðingarvopnið í hausinn: MUHAHAHA!!!! Já ég er að vera geðveik. En í alvöru, það er ekki normalt fyrir mann að vera í skólanum flest alla daga til kl 16:30 og þurfa þá að fara læra um leið og heim er komið og halda því áfram eftir kvöldmat og þangar til að maður fer að sofa og viti menn, ná ekki einu sinni að klára allt sem maður þarf að læra!!!! En um eitthvað annað en að læra. Eins og við meðlimirnir í Skaðrót erum að erum boðnar í mat heim til Þóru:) Gaman að fá að sjá sveitina hennar, ég þyrfti reyndar að vera að læra fyrir frönsku próf, gera söguritunarverkefni, heimspekiverkefni, lesa í íslensku, gera íslensku verkefni úr bók sem ég er ekki einu sinni búin að kaupa! Það er sko enginn tími fyrir hljómsveitaræfingar núna. Þóra og Sigurlaug í Morfís og eru að fara að keppa á föstudaginn. Maður verður nú að koma á það að styðja þær:) Og á laugardaginn er afmælið mitt:) Nokkuð gaman verð 18 ára bara:) VEI!!

þriðjudagur, október 26, 2004

Jæja hér er ég í þýsku að reyna að plana ferðalag til Þýskaland med Auði, reyndar eiga Jónína og Lára að koma með en þær vita það ekkert, enda verður ekkert af ferðinni. Ég er búin að þjást í þessum tímum, því mig langar svo mikið út en þarf að hanga yfir því að finna einhvað að gera í ímynduðu ferðalagi! Ekki nóg með það þá þurfum við að halda fyrirlestur um það í nóvember!
En já minns veit ekkert blogg frá mér lengi, nenni þessu varla lengur, ef ég ætti fartölvu þá væri skrattinn laus. En á föstudaginn verður spennandi dagur. Þá er tónlistarkeppninn:) Já við komumst upp úr undankeppninni og erum að fara að láta ljós og kynþokka okkar skína:) Allir verða að láta sjá sig!!! Ég mundi alveg mæta ef ég væri ekki að fara að keppa:) En verð að halda áfram með þýskuna áður en Úrsúla áttar sig á því hvað ég er að gera:)

fimmtudagur, september 09, 2004

Þegar allar síður og drasl á netinu finna hjá sér þörf að breyta til þá er skrattinn laus!!!
En já ég er orðin mjög svo léleg við bloggið. Ég finn bara ekki þessa sömu þörf fyrir þessari vitleysu lengur, ég hef líka svo brjálæðislega mikið að gera að það er alveg óheilsusamlegt!! 'Eg er með 24 einingar og er svo á karate æfingum og svo hljómsveitar æfingum og svo bætist allur lærdómurinn oná það. Og það virðist bara eins og það séu bara mínir kennarar sem eru að missa sig í því að setja fyrir heimavinnu!!!!!! Ég á mér ekkert félagslíf lengur, nema þá kannski frímínúturnar. En já það verður að sjá til með hversu mikið ég nenni að blogga. Ég held ég ætti að fara að hætta þessari vitleysu

þriðjudagur, júlí 20, 2004

Já það er komin ár og öld síðan ég bloggaði síðast. Það eru örugglega flest allir hættir að lesa þetta hjá mér. En skítt með það. Ég er komin heim til okkar ástkæra Íslands og gerði það sunnudaginn, 13 júní að kvöldi til. Og svo hef ég bara verið að tjilla í sveitinni með útlendingunum, feitu hestunum mínum og lata hundinum mínum, sem allir gestir okkar finna hjá sér hvínandi þörf til að segja að sé feitur í þokkabót!! Ég er nú ekki alveg sammála því máli, hann hefur oft litið verr út! En alltaf þarf hann að vera að fara úr hárum. Þetta eru bara einhver álög á okkur; öll hús sem við eigum og höfum átt heima í eru köld, alveg ísköld á veturna, báðir hundarnir sem við höfum átt farið allt árið um kring úr hárum og hestar eru alltaf að verða haltir hjá okkur, alveg uppá eigin spýtur. Ég hef svosem ekki frá neinu merkilegu að segja þar sem lítið merkilegt hefur gerst undanfarið. Reyndar þá var mjög gaman frá því ég bloggaði síðast og til þegar ég kom heim, það gerðist margt, nenni varla að fara að skrifa um það núna. Nema að ég fór á Metallicu tónleika í Parken í Köben!! Slipknot var að hita upp og einhver önnur ekki svo fræg hljómsveit sem hét einhvað.........einhvað sem ég man ekki. En lifið heil! Það gerir minns allavega ennþá:)

föstudagur, apríl 30, 2004

I dag åtti ad vera svona enn einn kynningardagurinn å tessum skola en tad skrådu engir utankomandi unlingar sig. HAHAHAHAHA!!!! Djøfull fannst mer tad fyndid og um leid sorglegt. Svo tad eru bara vid sømu gømlu nemendurnir sem eru ad leika okkur i workshopunum. Var i video i morgun og vid tokum upp gyserfilm (sem er sko hryllingsmynd). Vid vorum svona gladur og forvitinn krakkahopur sem komu med svefnpokana sina å yfirgefinn stad og hafa tad gaman og svo fer einn ad pissa og kemur bara ekkert aftur!! Madur hefur bara aldrei heyrt tennan ådur. En kannski tad versta er ad tad er solskin og dåsamlegt vedur uti. En vid letum tad ekki aftra af okkur.

En ein snild sem Hansi sendi mer. Tetta er mjøg snidugt lag:=)

Jå ymislegt hefur gerst i tessari viku sem eg hef alveg gleymt ad segja frå. Å månudaginn kom i skolann einhver "rokk" kor og søng fyrir okkur. Allt i lagi med tad, tetta voru bara einhverjir krakkar ad syngja og einhverjir adrir krakkar ad spila. Reynar finsnt mer tetta nafn rokk-kor vera algert bull tvi tetta var alls ekkert rokk. Robbie Williams og Westlife og svona, tetta var svona poppkor. En svo å tridjudaginn tå komu krakkar ur ødrum højskole og syndu okkur leikrit sem tau høfdu sjålf samid og svona, voda dugleg greyin. Tetta fjalladi um eina vesalings stelpu sem var einhvad gedveik og var alltaf ad tala vid fullt af folki i kringum sig sem aumingja sålfrædingurinn kom ekki auga å. Hun nåtturlega komst i endann innå beinu brautina og hætti ad tala vid tetta folk. Svo å midvikudaginn tå kom svona bigband og spiladi fyrir okkur, eiginlega tvo. Fyrst lille bigband og svo bigband. Tad var gedveikt flott hjå teim og svaka stud.

fimmtudagur, apríl 29, 2004

It´s so much better on holiday, some much better on holiday, that´s way we only work when we need the money!!!!

Ojå tad hljomar vel lagid sem eg er med å heilanum med Franz Ferdinand. Otrulegt stud hjå mer, eg labba um syngjandi og hummandi jafn følsk og hrafnsungi (tess vegna er eg trommuleikari!!). Uff er buin ad finna fullt af løgum sem mig langar ad covera med Skadrot!! Pyha!! Jå tetta er eitt af minu uppåhalds dønsku ordum med ordum eins og helt sikkert, sirijust (er alveg helt sikkert vitlaust skrifad, en svona segir madur tad), piss, åndsvagt, flugesmjekker og fleira skemmtilegt:) Eg er samt med små heimtrå tessa stundina. Tad eru allir heima i profum og komast brådum i sumarfri tegar eg å enntå sex vikur eftir å tessum leikskola, sem er fullur af kynslåtrum. Eg veit voda litid hvad eg å ad skrifa herna. Mer lidur svolitid eins og manneskju sem hefur tynt ordabokinni sinni (sem eg hef ekki gert). Ojå tegar flodhestar fara ad drekka kaffi en hafa engar hugmyndir.


This page is powered by Blogger. Isn't yours?